Air d’Islande - Íslensk menningarhátíð í París

5th – 7th desember 2008

Íslensk kvikmynda og tónlistarhátíð í París, 5 – 7 desember, 2008.

Dagana 5 til 7 desember verður haldin íslensk kvikmynda og tónlistarhátíð, í hinu sögufræga kvikmyndahúsi LA FILMOTHEQUE í París. Sýndar verða 12 íslenskar kvikmyndir í fullri lengd ásamt 2 stuttmyndum. Úrval mynda sem sýndar verða er breitt og í flokki nýrra íslenskra kvikmynda eru; Skrapp út, eftir Sólveigu Anspach og Mýrin eftir Baltasar Kormák ásamt myndinni Börn eftir Ragnar Bragason og Vesturport leikhópinn. Drepið verður niður fæti í íslenskri kvikmyndasögu og verða 3 myndir eftir Friðrik Þór Friðriksson sýndar; Börn náttúrunnar, Englar alheimsins og Fálkar. Myndir Dags Kára, Nói albínói og Voksne mennesker verða sýndar og tónlist verður gert hátt undir höfði með sýningu myndarinnar Heima sem fjallar um tónleikaferð Sigur Rósar um Ísland, sumarið 2007. Kvikmynd Róberts Douglas, Strákarnir okkar, verður sýnd í samstarfi við Salon International Gay & Lesbian Friendly og má gera ráð fyrir skemmtilegri stemmningu á þeirri sýningu. Stuttmyndirnir sem boðið verður uppá eru Smáfuglar eftir Rúnar Rúnarsson og Bræðrabylta Gríms Hákonarssonar. Segja má að með stuttmyndunum sé verið að gefa forsmekkinn að því sem koma skal í íslenskri kvikmyndagerð á næstu árum þar sem báðir leikstjórarnir eru verðlaunaðir í bak og fyrir og við bíðum öll spennt eftir fyrstu myndum þeirra í fullri lengd.

Leikstjórarnir Sólveig Anspach og Dagur Kári Pétursson koma og verða viðstödd sýningar á myndum sínum og gefst áhorfendum tækifæri til þess að ræða við kvikmyndagerðarfólkið. Það er Air d’Islande hátíðinni mikill heiður að leikstjórarnir sjái sér fært að koma og spjalla við áhorfendur en frakkar eru miklir áhugamenn um kvikmyndir og stundum er talað um að það séu jafnmargir kvikmyndaleikstjórar í Frakklandi og það eru íbúar. Segir það sitt um ástríðu frakka og áhuga á kvikmyndum.

Tónleikahluti hátíðarinnar er helgaður tónlistarmanninum unga, Þóri Georg Jónssyni, sem einnig er þekktur undir nafninu My Summer As A Salvation Soldier. Þórir er fjölbreyttur tónlistarmaður, hann er einnig meðlimur í hinni frábæru rokk hljómsveit Gavin Portland; hljómsveitunum Fighting Shit og Hryðjuverk og kántrí trash-bandinu Death Metal Super Squad, til að nefna eittvað. Þórir kemur fram á hátíðinni sem alter egóið sitt, My Summer As A Salvation Soldier og spilar á gítar og syngur fyrir hátíðargesti. Þóri hefur verið líkt við Lou Reed, Xiu Xiu, The Microphones, Neil Young og Nick Drake. Ekki slæm blanda það og aðstandendur Air d’Islande eru spenntir yfir því að kynna þennan unga og efnilega tónlistarmann fyrir frönskum áhorfendum.

Gestum hátíðarinnar gefst einnig tækfæri til þess að vinna flugmiða fyrir tvo til Íslands, ásamt miða í Bláa lónið og út að borða á Þrjá frakka, svo það er ekki úr vegi að skella sér á hátíðina og njóta þess besta sem íslensk kvikmyndagerð og tónlist hefur upp á að bjóða um þessar mundir, ásamt því að freista gæfunnar.

Hátíðin fer fram í LA FILMOTHEQUE í París, sem er staðsett á 9, Rue Champollion, 75005 Paris.

Fyrir frekari upplýsingar hafið samband við Ara Allansson, stjórnanda hátíðarinnar á netfangið ari (at) airdislande (dot) com

Góða skemmtun,

Starfsfólk Air d’Islande

Les dernières nouvelles

05
Dec

Arrivé aujourd'hui-même à Paris, Dagur kari sera des nôtres pour les projections de Noi Albinoi et Dagur Kari ! Nous vous attendons nombreux ! Pour mémoire, Noi Albinoi sera projeté samedi à 17h, Dark Horse dimanche à 17h.

lire la suite
05
Dec

Pour celles et ceux qui n'ont pas eu entre les mains le précieux programme, n'hésitez pas à y jeter un oeil, pour planifier votre week-end islandais ! >> Cliquez sur l'onglet "projections"

lire la suite

Recevoir des nouvelles d'Air d'Islande :

Recevez la newsletter

Flickr

Hello, c’est le groupe Flickr, visitez-le et rejoignez-nous !

logo Myspace
logo Virb
logo Facebook